Menningarráð Vesturlands – styrkir

nóvember 4, 2013
Menningarráð Vesturlands auglýsir menningarstyrki og
stofn- og rekstrarstyrki ársins 2014.
Umsóknarfrestur rennur út 1. desember 2013.
Menningarstyrkir. Tilgangur menningarstyrkjanna er að efla menningarstarfsemi á Vesturlandi. Árið 2014 mun Menningarráð Vesturlands leggja áherslu á eftirfarandi verkefni:
Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum í listum, nýsköpun og ferðaþjónustu.
Verkefni sem styrkja listræna sköpun og samstarf ungs fólks á Vesturlandi.
Verkefni sem styrkja listræna sköpun og hugsun í verkefnum barna og unglinga.
Verkefni sem undirbúa og efla samstarf á Vesturlandi, milli landsvæða og landa.
Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Vesturlandi.
Stofn- og rekstrarstyrkir. Tilgangur styrkjanna er að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Stuðla að nýsköpun og styðja við starfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á Vesturlandi. Umsækjendur geta verið félög, fyrirtæki stofnanir og sveitarfélög á svæðinu. Umsækjendur verða að geta sýnt fram á fleiri fjárhagslega bakhjarla. Styrkir ráðsins geta aldrei numið hærri fjárhæð en helmings alls kostnaðar.
Athugið að hér eru tvenns konar styrkveitingar auglýstar, annars vegar menningarstyrkir og hins vegar stofn- og rekstrarstyrkir og er því um tvö aðskilin umsóknarform að ræða. Auglýsingin er háð fjárlögum ársins 2014.
Viðvera menningarfulltrúa verður á eftirfarandi stöðum á Vesturlandi:
Þar verða menningarstyrkir og stofn- og rekstrarstyrkir kynntir í samstarfi við heimamenn.
 
Búðardalur: Þriðjudaginn 5. nóvember kl. 12 -14 í stjórnsýsluhúsinu, Elísabet Haraldsdóttir og Halla Steinólfsdóttir formaður menningarráðs.
Borgarnes: Miðvikudaginn 6. nóvember kl. 14 -16 á skrifstofu Menningarráðs Bjarnarbraut 8, Elísabet Haraldsdóttir og Einar Þorvaldsson, atvinnuráðgjöf SSV
Stykkishólmur: Föstudaginn 8. nóvember. kl. 12 – 14, Elísabet Haraldsdóttir og Dagbjörg Höskuldsdóttir, formaður safna og menningarnefndar.
Snæfellsbær: Föstudaginn 8. nóvember kl 12- 14 í Átthagastofu, Ólafsvík, Elísabet Haraldsdóttir, Kristín Björg Árnadóttir, símenntun og Margrét Björk Björnsdóttir, atvinnuráðgjafi.
Grundarfjörður: Föstudaginn 8. nóvember kl. 15.-16 í Sögusafninu Grundargötu, Elísabet Haraldsdóttir og Alda Hlín Karlsdóttir menningarfulltrúi Grundarfjarðar.
Akranes: Mánudaginn 11. nóvember kl. 12 -14 í Garðakaffi Safnasvæðinu Görðum, Elísabet Haraldsdóttir og Anna Leif Elídóttir, verkefnastjóri menningarmála.
Hvalfjarðarsveit: Mánudaginn 11. nóvember k. 15-16 í Stjórnsýsluhúsinu, Elísabet Haraldsdóttir og Anna Leif Elídóttir form. menningar- og atvinnuþróunarmála.
 

Share: