Menningarfulltrúi Vesturlands

nóvember 24, 2006
Elísabet Haraldsdóttir menningarfulltrúi Vesturlands verður til viðtals í ráðhúsi Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 í Borgarnesi, miðvikudaginn 29. nóvember 2006 frá kl. 16:00 – 17:30.
Kynntar verða úthlutunarreglur Menningarráðs Vesturlands vegna styrkja á árinu 2007 og veittar upplýsingar um fyrirkomulag umsókna. Umsóknarfrestur er til 5.janúar 2007.
 
Mögulegir umsækjendur eru hvattir til að nota þetta tækifæri til að viðra hugmyndir sínar og útfærslur við menningarfulltrúa Vesturlands.
 
 
 

Share: