Laust er til umsóknar starf matráðs við leikskólann Andabæ. Um er að ræða 100% stöðu frá 23. apríl 2018. Í starfinu felst umsjón með mötuneyti leikskólans.
Borgarbyggð er heilsueflandi samfélag sem leggur áherslu á holla næringu í þeim stofnunum sem sveitarfélagið rekur.
Helstu verkefni:
- að elda og framreiða mat í matar- og kaffitímum,
- að sjá um innkaup,
- frágangur og þrif auk annarra tilfallandi verkefna.
Hæfniskröfur:
- Hreinlæti og snyrtimennska skilyrði,
- Frumkvæði, sveigjanleiki og samstarfsvilji,
- Lipurð og færni í samskiptum,
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
Leikskólinn er heilsuleikskóli í heilsueflandi samfélagi og er því góð þekking á næringarfræði og hollustufæði fyrir börn á leikskólaaldri mikilvæg.
Frekari upplýsingar um starfið:
Um framtíðarstarf er að ræða. Vinnutími er frá kl. 8:00-16:00.
Stafið er laust frá 15. apríl 2018.
Umsóknarfrestur er til 30. mars 2018. Umsókn má senda rafrænt á netfangið andabaer@borgarbyggd.is
Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 433 7170/846 4341 eða Áslaug Ella Gísladóttir aðstoðarsleikskólastjóri í síma 433 7170
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.