Markmið sett á nýju ári!

janúar 3, 2019
Featured image for “Markmið sett á nýju ári!”

Hefjum nýtt ár með fyrirheitum um heilsusamlegt líferni

fimmtudaginn 10. janúar 2019 kl. 20:00 í Hjálmakletti

Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari og næringarfræðingur fjallar um að setja sér raunhæf markmið í næringu og hreyfingu á nýju ári. Elísabet hefur stundað hlaup í rúman áratug og lokið fjölmörgum maraþonum og lengri utanvegahlaupum með góðum árangri. Hún er annar höfundur bókarinnar Út að hlaupa sem er alhliða handbók fyrir byrjendur og lengra komna í hlaupaíþróttinni.

Fyrirlesturinn er hluti af fræðslufundaröð um Heilsueflandi samfélag á árinu 2019


Share: