Nýlega var auglýst eftir umsóknum um starf mannauðsstjóra hjá Borgarbyggð. 14 umsóknir bárust um starfið en einn umsækjenda dró umsókn sína til baka.
Umsækjendur voru:
Einar G. G. Pálsson Borgarnesi
Elín Magnúsdóttir Borgarnesi
Guðjón Helgi Egilsson Reykjavík
Guðni Birkir Ólafsson Mosfellsbæ
Ingi Hreinsson Mosfellsbæ
Ingibjörg Guðmundsdóttir Hafnarfirði
Kristín Lilja Lárusdóttir Borgarnesi
Jóhannes B. Pétursson Hafnarfirði
Kristín Ólafsdóttir Reykjavík
Silja Eyrún Steingrímsdóttir Borgarnesi
Sólveig Katrín Hallgrímsdóttir Akranesi
Svanhvít Pétursdóttir Borgarnesi
Thelma Sigurðardóttir Vestmannaeyjum
Ákveðið hefur verið að ráða Ingibjörgu Guðmundsdóttur í starfið. Ingibjörg er með diplómapróf í starfsmannastjórnun og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur áður starfað við starfsþróun og mannauðsmál hjá Hafnarfjarðarbæ.
Ingibjörg er boðin velkomin til starfa hjá Borgarbyggð.