Málþing um málefni innflytjenda

apríl 13, 2007
Þann 17.apríl næstkomandi verður haldið málþing um málefni innflytjenda á Vesturlandi.
Málþingið verður haldið í félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík og mun hefjast kl.12:30 með léttum veitingum og er áætlað að því ljúki kl.15:30.
Leitast verður við að svara spurningunni: Hvernig hafa sveitarfélög, atvinnurekendur og íbúar á Vesturlandi tekið á móti innflytjendum ?
Markmiðið með málþinginu er m.a. að varpa ljósi á eftirfarandi spurningar:

  • Höfum við tekið vel á móti innflytjendum hér á Vesturlandi?
  • Hvaða upplýsingar eru í boði fyrir innflytjendur?
  • Hvaða upplýsingar vantar?
  • Hver er stefna stjórnvalda varðandi innflytjendur?
  • Hver er upplifun innflytjenda þegar þeir flytja á Vesturland?
  • Hver eru kjara- og atvinnuréttindi innflytjenda?

Nánari dagskrá verður birt á www.ssv.is
Fjölmargir áhugaverðir fyrirlesarar, fundarstjóri verður Gísli Einarsson fréttamaður.
Skráning fer fram í síma 437 1318 eða á netfangið kristin@ssv.is
Share: