Í samræmi við skýrslu vinnuhóps um framtíðarskipulag sorphirðu hefur verið ákveðið að fækka enn frekar opnum gámasvæðum í sveitarfélaginu. Gámar við Háfslæk/Tungulæk verða fjarlægðir á næstu dögum, í síðasta lagi föstudaginn 8. apríl.
Gámastöðin við Sólbakka í Borgarnesi er opin virka daga milli kl. 14 og 18 og á laugardögum milli kl. 10 og 14.
Tökum ábyrgð á úrganginum okkar og verndum náttúruna!
Umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar