Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar á Vesturlandi

mars 22, 2021
Featured image for “Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar á Vesturlandi”

Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk lauk formlega á Vesturlandi þann 18. mars sl. með upplestrarhátíð í Laugargerðisskóla. Þar komu saman, auk heimamanna, fulltrúar Grunnskólans í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar, Auðarskóla og Heiðarskóla en hver skóli valdi tvo til þrjá fulltrúa til þátttöku. 

 

Að þessu sinni voru lesnir kaflar úr bókinni Kennarinn sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk. Auk þess fluttu þátttakendur ljóð að eigin vali. Fyrstu þrjú sætin hrepptu þau Aldís Tara Ísaksdóttir Heiðarskóla, Þorsteinn Logi Þórðarson Grunnskólanum í Borgarnesi og Steinunn Bjarnveig Eiríksdóttir Blöndal Grunnskóla Borgarfjarðar. Að vanda reyndist ekki auðvelt að velja sigurvegarana þar sem allir keppendur stóðu sig með miklum ágætum.

 

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk hefur, undanfarinn aldarfjórðung, hafist ár hvert á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember og lokið í mars með því að valdir eru þrír bestu upplesarar í hverju byggðarlagi, eða í umdæmi hverrar skólaskrifstofu. Hún skiptist í tvo hluta, ræktunarhluta og keppnishluta. Ræktunarhlutinn er sá hluti upplestrarkeppninnar sem mestu máli skiptir. Hann miðast við tímabilið frá degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember og fram í lok febrúar. Á þessu tímabili er, í skólastarfinu, lögð sérstök rækt við vandaðan upplestur og framburð.

 


Share: