LÓA – Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

apríl 26, 2022
Featured image for “LÓA – Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina”

Háskóla-, vísinda- og iðnaðarráðuneytið hefur umsjón með umsóknarferlinu. Umsóknarformið er rafrænt inn á www.hvin.is og í nokkrum skrefum. 

Áður en umsókn er skrifuð er mjög mikilvægt að kynna sér efni handbókar sem finna má á upplýsingasíðu Lóu nýsköpunarstyrkja.

Hlutverk styrkjanna:

  • Auka við nýsköpun á landsbyggðinni.
  • Styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni. 
  • Stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðlastarf á forsendum svæðanna.

Frekari upplýsingar veitir Sigurður Steingrímsson, sérfræðingur hjá Háskóla-, iðnaðar- og nýksöpunarráðuneytinu, netfang: sigurdur.steingrimsson@hvin.is.


Share: