Einn fágætasti gripurinn á sýningunni Börn í 100 ár, sem staðið hefur nú yfir í Safnahúsi um allnokkurt skeið, er Willisjeppi Jóhönnu Jóhannsdóttur ljósmóður. Hún starfaði í Borgarnesi og nágrenni í áratugi á síðustu öld. Nokkuð var um það í sumar að fólk sem Jóhanna tók á móti hafi komið á sýninguna og er nú verið að safna nöfnum þeirra í bók til minja um farsælan starfsferil þessarar merku konu. Á þeim undirskriftum sem þegar eru komnar má sjá að um er að ræða langan starfstíma, elsta ,,barnið“ fæddist 1943 og það yngsta 1974. Bókin verður höfð á bókasafninu í Safnahúsi í vetur og undirskriftum safnað þar, þangað til sýningin verður opnuð aftur í vor.
Þess má geta að Jeppinn, sem er árgangur 1951, er lánaður á sýninguna af núverandi eiganda hans, Kristjáni Björnssyni íBorgarnesi. Það er Kristjáni og Erni Símonarsyni fyrir að þakka að bíllinn er nánast eins og þegar Jóhanna átti hann og eiga þessir heiðursmenn þakkir skildar fyrir góða varðveislu.
Í sumar var sýningin opin alla daga frá 13-18 og sóttu um 2.500 gestir hana á þeim tíma. Í vetur verður ekki opið að staðaldri, en tekið á móti hópum eftir samkomulagi þangað til opnað verður aftur næsta vor. Gert er ráð fyrir að sýningin standi í nokkur ár hið minnsta. Hún hefur hlotið mikið lof fyrir frumlega nálgun á viðfangsefninu sem er saga barna á Íslandi á 20. öld, eftir að fræðslulög tóku gildi í ársbyrjun 1908. Sýningarhönnuður er Snorri Freyr Hilmarsson, nú fastráðinn leikmyndahönnuður hjá Borgarleikhúsinu.
Myndir: Guðrún Jónsdóttir