Ljósleiðari í Borgarbyggð – opnun tilboða

október 10, 2018
Featured image for “Ljósleiðari í Borgarbyggð – opnun tilboða”
Dagurinn í gær markaði tímamót í undirbúningi á lagningu á ljósleiðara í Borgarbyggð. Tilboð í verklegar framkvæmdir voru opnuð hjá Ríkiskaupum klukkan 11:00 að viðstöddum sveitarstjóra, fulltrúum Ríkiskaupa og fulltrúum bjóðenda. Þrjú verktakafyrirtæki skiluðu inn tilboði í verkefnið. Eftirfarandi boð bárust:
Borgarverk ehf bauð 1.032.904.586kr
Þjótandi ehf bauð 1.127.938.710kr
SH Leiðarinn ehf bauð 774.861.244kr
Boðin verð innifela virðisaukaskatt. Verklegar framkvæmdir innfela jarðvinnu við lagningu á kerfinu, ísetningu ljósleiðara í lagnakerfið, tengingu á ljósleiðara og annan frágang við kerfið þar til það er tilbúið til notkunnar.

Share: