Litglaðir vígásar í Reykholti

mars 29, 2012
Um þessar mundir er myndlistarmaðurinn Hallur Karl Hinriksson að störfum í Snorrastofu við að mála vígásana sem fyrirhugað er að verði í anddyri sýningarinnar um Snorra Sturluson, sem opnuð verður í sumar í Reykholti. Vígásarnir eru að taka á sig mikið líf í höndum listamannsins og hafa glatt geskomandi ferðamenn sem geta fylgst með Halli að störfum í sýningarsalnum.
Hallur Karl Hinriksson er sunnlenskur að kyni en er menntaður í frönskum listaskóla, -École Supérieurd’Art de Quimper á Bretagneskaga . Við vígásana notast hann við fornbúna liti sem hafa verið framleiddir í sömu verksmiðju um margra alda skeið. Margir fylgdust með norska útskurðameistaranum Biarte Aarseth við tréskurðinn á vígásunum í fyrra, en Sigríður Kristinsdóttir teiknaði þá upp. Og nú er enn meira fjör að færast í leikinn, er ásarnir lifna við í höndum Halls Karls, meistara litanna úr Flóanum, í fullu samræmi við þær litríku miðaldir sem við þekkjum frá Snorra Sturlusyni í Reykholti.

Share: