![](https://borgarbyggd.is/images/Mynd_0704945.jpg)
Samtals hefur Skúli unnið að smíðinni með hléum í tvö og hálft ár. Vegna augljósra tengsla Borgarfjarðar við örlög skipsins ákvað hann að gefa Safnahúsi líkanið sem sjá má á meðfylgjandi mynd. Það verður til sýnis í Safnahúsi eftir áramótin.
Rannsóknaskipið fræga Pourquoi-pas? fórst við Straumfjörð á Mýrum þann 16. september árið 1936. Leiðangursstjóri var hinn kunni franski vísindamaður Jean-Baptiste Charcot og fórst hann í strandinu ásamt 39 öðrum áhafnarmeðlimum. Aðeins einn maður komst lífs af; Eguene Gonidec. Þetta hörmulega slys hafi mikil áhrif á íslensku þjóðina og vakti mikla athygli um allan heim enda Charcot þekktur fyrir fræðistörf sín.
Ljósmynd: Guðrún Jónsdóttir