Lífsgleði og velgengni eftir pöntun

mars 19, 2019
Featured image for “Lífsgleði og velgengni eftir pöntun”

Lífsgleði og velgengni eftir pöntun 20. MARS KL. 20:00 Í HJÁLMAKLETTI
Máttur orða og hugsana er meiri en við gerum okkur grein fyrir! Enginn annar en við sjálf getur ráðið því hvað við segjum og hugsum. Okkar er því valið í hvaða átt við viljum beina athyglinni, í átt að kyrrstöðu og erfiðleikum eða góðum árangri, lífsgleði og velgengni.
Bergþór fjallar um nýjan lífsstíl og þá auknu orku sem rétt viðhorf og rækt við líkamann hafa fært honum. Kvíði, hamlandi fullkomnunarárátta og áhyggjur eru á bak og burt og á öllum sviðum lífsins ríkir framkvæmdahugur og tilhlökkun. Galdurinn á bak við þennan endurnýjaða kraft er þakklæti og uppbygging heilbrigðrar sjálfsmyndar með lygilega einföldum aðferðum.

Freyjukórinn mætir og leiðir okkur í söng um gleðina!


Share: