Léttari skipulagsgögn

september 14, 2010
Nokkrar ábendingar hafa borist frá íbúum Borgarbyggðar vegna aðalskipulagsgagna á heimasíðu sveitarfélagsins. Gögnin hafa verið of þung fyrir heimilstölvur. Nú höfum við fengið léttari gögn frá Landlínum og vonum að vandamálið sé úr sögunni. Íbúar eru hvattir til að kynna sér skipulagstillögurnar.
Auglýsing um skipulag:
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum ásamt umhverfisskýrslu skv. 4. mgr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Aðalskipulagstillagan og umhverfisskýrslan verða til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi frá 30. ágúst til 27. september 2010. Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar sjá hér og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir. Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eigi síðar en 11. október 2010.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Jökull Helgason
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
 

Share: