Okkur vantar leikskólakennara í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 100% framtíðar stöðu. Einnig vantar í 100% afleysingastöðu í eitt ár v/ fæðingarorlofs.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Við erum Grænfánaskóli, Heilsuleikskóli og vinnum með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs en það er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.
Helstu verkefni og ábyrgð leikskólakennara:
Leikskólakennari fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans. Hann vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.
Menntun og færnikröfur:
- Leyfisbréf leikskólakennara
- Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
- Færni í mannlegum samskiptum
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru konur og karlar hvött til að sækja um. Ráðið er í starfið frá og með 8. ágúst 2019 eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 24. maí 2018.
Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.
Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 4337170
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til leikskólastjóra á netfangið andabaer@borgarbyggd.is eða inni á heimasíðu skólans http://andabaer.leikskolinn.is/ undir upplýsingar/starfsumsókn.