Leikskólakennari óskast á leikskólann Klettaborg í Borgarnesi

september 7, 2007
Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi auglýsir eftir leikskólakennara og/eða þroskaþjálfa sem fyrst.
 
Um er að ræða 50 % stöðu eftir hádegi, vinnutími kl. 13-17.
Leikskólinn Klettaborg er 3ja deilda leikskóli sem leggur megináherslu á samskipti, skapandi starf og nám án aðgreiningar.
Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, jákvæðni, sjálfstæði og skipulögðum vinnubrögðum.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri í síma 437-1425 eða á netfanginu steinunn@borgarbyggd.is.
Til greina kemur að ráða starfsmenn með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.
 
 

Share: