Leikskólakennari óskast á leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal

ágúst 24, 2020
Featured image for “Leikskólakennari óskast á leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal”

Leikskólinn Hnoðraból er tveggja deilda leikskóli staðsettur að Grímsstöðum í Reykholtsdal. Nýtt húsnæði leikskólans er í smíðum við grunnskólann að Kleppjárnsreykjum. Áætlað er að taka hann í notkun á næstu mánuðum.

Framundan eru skemmtilegir tímar, að flytja skólann á nýjan stað og þróa starfið þar ásamt því að byggja upp samstarf og samvinnu við grunnskólann. Það dvelja að jafnaði um 30  börn á aldrinum 9 mánaða til 6 ára og störfum við eftir hugmyndafræðinni Leiðtoginn í mér. Við skólann starfar samstillt og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á að mæta fjölbreytileika barnahópsins með virðingu og stuðla að vellíðan barna og góðum skólabrag.

 Óskað er eftir  leikskólakennara í fasta stöðu. Gott væri að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Leikskólakennari vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og stefnu sveitarfélagsins

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur með reynslu. 

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst  nk.

Nánari upplýsingar veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri í síma 433-7180 eða 862-0064. Umsóknir með ferilsskrá, meðmælendum og öðrum upplýsingum berist til leikskólastjóra á netfangið sjofn@borgarbyggd.is


Share: