Leikskólanum Andabæ vantar leikskólakennara/leiðbeinanda í 90% starf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Um er að ræða afleysingarstarf á deildum.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Ella Gísladóttir leikskólastjóri í síma 4337170 eða gegnum netfangið aslaug@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur rennur út 6. mars.