Leikskólakennara vantar á leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal

ágúst 6, 2010
Við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal er laus staða leikskólakennara frá og með 23. ágúst n.k. Um er að ræða fulla stöðu leikskólakennara.
 
Leikskólinn Hnoðraból er einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 15-20 börn á aldrinu 18 mánaða til 5 ára og 4-5 starfsmenn.
 
Menntunar og hæfniskröfur:
– Leikskólakennaramenntun
– Færni í mannlegum samskiptum
– Sjálfstæð vinnubrögð
– Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
– Ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða starfsmenn með háskólapróf eða aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Í samræmi við lög um leikskóla nr. 90/2008 þurfa þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólum Borgarbyggðar að skila sakavottorði.
 
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst
Nánari upplýsingar veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir, leikskólastjóri, í síma 435-1157 eða 862-0064, eða í tölvupósti: hnodrabol@borgarbyggd.is

Share: