Leikskólakennara vantar á Bifröst

október 10, 2005
Við leikskólann Hraunborg á Bifröst eru lausar stöður leikskólakennara.

Um er að ræða 100% störf en ráðning í hlutastörf gæti einnig komið til greina. Fáist ekki leikskólakennarar kemur til greina að ráða starfsmenn með háskólapróf eða aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðmunda Ólöf Jónasdóttir, leikskólastjóri, í síma 435-0077 eða í tölvupósti; hraunborg@borgarbyggd.is
 

Share: