
Fimmtudaginn 28. maí var Leiðtogadagur í leikskólanum Andabæ á Hvanneyri.  Þar sýndu leiðtogarnir í Andabæ hvernig þeir hafa verið að vinna með venjurnar sjö og þjálfa leiðtogafærni sýna út frá hugmyndafræði 
Leiðtogans í mér. Leiðtogadagurinn í Andabæ var barnanna, þau tóku á móti 
gestunum, voru með uppákomu í salnum og elstu börnin leiddu gesti um leikskólann og sýndu þeim það sem þau eru að gera. Í lokin buðu börnin gestum upp á hjónabandsælu sem þau höfðu 

bakað.  Rúmlega 30 gestir komu á leiðtogadaginn sem tókst mjög vel.  Eftir hádegi var svo opið hús og voru foreldrar og staðarbúar duglegir að koma í heimsókn og vill starfsfólk leikskólans þakka öllum kærlega fyrir komuna.