Matráður óskast í leikskólann Klettaborg í Borgarnesi
Laust er til umsóknar starf matráðs við leikskólann Klettaborg. Um er að ræða 93,75% stöðu sem felst í umsjón með mötuneyti leikskólans.
Borgarbyggð er heilsueflandi samfélag sem leggur áherslu á holla næringu í þeim stofnunum sem sveitarfélagið rekur.
Helstu verkefni eru að:
- útbúa og framreiða mat í matar- og kaffitímum
- frágangur og þrif auk annarra tilfallandi verkefna
- sjá um innkaup/pantanir á mat og hreinlætisvörum
- hafa umsjón með kaffistofu og þvotti
Hæfniskröfur:
- Hreinlæti og snyrtimennska skilyrði
- Færni og þekking á bráðaofnæmi og ofnæmi almennt
- Frumkvæði, sveigjanleiki og samstarfsvilji
- Lipurð og færni í samskiptum
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
Leikskólinn er heilsueflandi leikskóli og er því góð þekking á næringarfræði og hollustufæði fyrir börn á leikskólaaldri mikilvæg. Unnið er eftir matseðlum frá Samtökum heilsuleikskóla.
Frekari upplýsingar um starfið:
Vinnutími er frá kl. 8:00-15.30. Um framtíðarstarf er að ræða.
Starfið er laust frá 1. maí.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri í síma 433-7160/860-8588.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2018. Umsókn má senda rafrænt á netfangið klettaborg@borgarbyggd.is
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.