Laust starf stuðningsfulltrúa í búsetuþjónustu

febrúar 19, 2021
Featured image for “Laust starf stuðningsfulltrúa í búsetuþjónustu”

Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.

Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.

Á þeirri vegferð sem framundan er ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði að framúrskarandi þjónustu og öflugu vinnuumhverfis.

Erum við að leita að þér?

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ

  • Markmið er að gera einstaklingum  kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og/eða taka virkan þátt í samfélaginu.  Áhersla er lögð einstaklingsmiðaða þjónustu og valdeflingu þjónustuþega. 
  • Keyra matarbakka til aldraðra og öryrkja. 
  • Sinnir öðrum störfum sem honum eru falin af yfirmanni. 

MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR

  • Góð almenn menntun
  • Félagsliðamenntun æskileg
  • Íslenskukunnátta
  • Umsækjendur séu eldri en 20 ára
  • Hafi gilt ökuleyfi
  • Hreint sakavottorð

FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ

Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kjöl eða viðkomandi stéttarfélag.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á og starfsvottorð. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.

Umsóknir skal senda á netfangið atvinna@borgarbyggd.is.

Öllum umsóknum verður svarað.

Vinnutími: Vaktavinna

Starfshlutfall: 95% framtíðarstarf

Starfssvið: Fjölskyldusvið

Umsóknarfrestur er til og með: 7. mars n.k.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Guðmundsdóttir, netfang: gudbjorg.gudmundsdottir@borgarbyggd.is eða í  síma 4337280.

 


Share: