Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskornum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Tónlistarskóli Borgarfjarðar er starfræktur samkvæmt lögum nr. 75/1985. Tónlistarskóli Borgarfjarðar gegnir fjölbreyttu hlutverki í Borgarbyggð. Hann stuðlar að öflugu tónlistarlífi í sveitarfélaginu. Jafnframt vinnur hann að því að vinna að aukinni hæfni, þekkingu og þroska einstaklinga.
Erum við að leita að þér?
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
- Ber rekstrarlega ábyrgð á starfsemi skólans í samræmi við samþykktir sveitarstjórnar.
- Ber faglega ábyrgð á starfsemi skólans í samræmi við lög og reglugerðir
- Ráðstafar vinnu kennara til þeirra faglegu starfa og verkefna sem starfsemi skólans kallar á.
- Skipuleggur tónleikahald og viðburði tónlistarskólans.
- Tekur þátt í samstarfi við aðra skóla og stofnanir í Borgarbyggð.
- Leiða áframhaldandi þróunarstarf með skólann með það að leiðarljósi að fjölga listgreinum við skólann og útvíka starfsemina.
- Önnur þau verkefni sem honum eru falin.
MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR
- Framhaldsmenntun á sviði tónlistar.
- Reynsla af tónlistarkennslu og tónlistarflutningi.
- Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis-menntunarfræði kostur.
- Reynsla af rekstri æskileg.
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Leiðtogahæfileikar.
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um. Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum eða viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknir skal senda á netfangið atvinna@borgarbyggd.is. Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfshlutfall: 100%
Starfssvið: Fjölskyldusvið
Umsóknarfrestur er til og með: 20. maí 2021
Nánari upplýsingar veitir Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs Borgarbyggðar netfang: hlodver.gunnarsson@borgarbyggd.is – símanúmer: 433-7100