Starf skólaliða í Grunnskólanum í Borgarnesi er laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starf sem unnið er á dagvinnutíma. Skólaliði sér um daglega ræstingu og tekur þátt í uppeldisstarfi og öðrum störfum sem fram fara innan skólans. Megin áhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda.
Helstu verkefni:
- Vinnur eftir gildum, stefnu og áherslum skólans.
- Sér um daglega ræstingu skv. nánari lýsingu, heldur húsnæði og lóð skólans hreinni og snyrtilegri skv. vinnuáætlun.
- Hefur umsjón með nemendum í frímínútum og matartímum úti og inni. Einnig í búningsklefum og frístund ef með þarf.
- Aðstoðar nemendur í leik og starfi og í hléum milli kennslustunda, leiðbeinir þeim í samskiptum þeirra við aðra nemendur og starfsfólk skólans.
Hæfniskröfur:
- Hreinlæti og snyrtimennska skilyrði,
- Frumkvæði, sveigjanleiki og samstarfsvilji,
- Lipurð og færni í samskiptum,
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
Nánari upplýsingar veitir Júlía V. Guðjónsdóttir skólastjóri í síma 433 7400 eða á julia@grunnborg.is
Umsóknarfrestur er til 25. júní 2020 og skulu umsóknir sendar á julia@grunnborg.is
Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við Samband íslenskra sveitarfélaga.