Laust starf sérkennslustjóra í leikskólanum Andabæ

ágúst 12, 2020
Featured image for “Laust starf sérkennslustjóra í leikskólanum Andabæ”

Sérkennslustjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra og öðrum lögum sem við eiga, aðalnámskrá leikskóla, stefnu viðkomandi sveitarfélags og skólanámskrá leikskólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar ásamt leikskólastjóra.
  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla
  • Ber ábyrgð á miðlun upplýsinga milli sérkennsluráðgjafa/sérkennslufulltrúa leikskóla og starfsmanna leikskólans.
  • Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg
  • Reynsla af sérkennslu
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta.

Starfslýsing sérkennslustjóra má sjá hér.

Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2020. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 433 7170/846 4341

Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar rafrænt á andabaer@borgarbyggd.is

 


Share: