Okkur vantar leikskólakennara í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 70% stöðu. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Við erum Grænfánaskóli síðan 2005, Heilsuleikskóli síðan 2013, einnig erum við að vinna með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs en það er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
Leikskólakennari fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans. Hann vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.
MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR
- Leikskólakennararéttindi
- Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
- Færni í mannlegum samskiptum
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Vinnutími: dagvinna
Starfshlutfall: 70%
Starfsvið: fjölskyldusvið
Umsóknarfrestur: 30. mars. 2021
Miðað er við að starfsmaður geti hafið störf: 6. apríl 2021 eða eftir nánara samkomulagi
Umsókn skal senda á netfangið:andabaer@borgarbyggd.is Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetjum við áhugasama um að sækja um óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.
Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 4337170