Laust starf leikskólakennara í leikskólann Andabæ

ágúst 12, 2020
Featured image for “Laust starf leikskólakennara í leikskólann Andabæ”

Okkur vantar leikskólakennara í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 100% stöðu. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Við erum Grænfánaskóli síðan 2005, Heilsuleikskóli síðan 2013, einnig erum við að vinna með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs en það er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.

Helstu verkefni og ábyrgð leikskólakennara:

Leikskólakennari fylgist með nýjungum á sviði kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans. Hann vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennararéttindi
  • Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til 18. ágúst 2020. Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri í síma 433-7170. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til leikskólastjóra á netfangið andabaer@borgarbyggd.is

 


Share: