Laust starf leikskólakennara í Klettaborg

nóvember 28, 2019
Featured image for “Laust starf leikskólakennara í Klettaborg”

Frábært tækifæri – skemmtilegt og gefandi starf í Klettaborg !

Okkur vantar leikskólakennara sem vill vinna í góðum og traustum leikskóla

Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í metnaðarfullu og faglegu starfi þar sem þroski og velferð barna er í fyrirrúmi. Áhersluatriðin í leikskólastarfinu eru: Einstaklingsmiðað nám, leiðtogahæfni, leikskólalæsi og heilsuefling.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennararéttindi
  • Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð færni í mannlegum samskiptum

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Ráðið verður í starfið frá og með 1. janúar 2020 eða eftir nánara samkomulagi. Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Eldri umsóknir þarf að endurnýja hjá leikskólastjóra. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til  11. desember nk.

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri í síma 433-7160. Umsóknir með ferilsskrá, meðmælendum og öðrum upplýsingum berist til leikskólastjóra á netfangið klettaborg@borgarbyggd.is eða á heimasíðu leikskólans www.klettaborg.leikskolinn.is

 


Share: