Laust starf leiðbeinanda í Öldunni

mars 23, 2020
Featured image for “Laust starf leiðbeinanda í Öldunni”

Laust er til umsóknar 90% starf leiðbeinanda í Öldunni í Borgarnesi. Unnið er alla virka dag frá kl. 9.00-15.30 eða eftir frekari samkomulagi.

Aldan býður upp á verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjálfun fyrir fatlað fólk. Starf Öldunnar samanstendur af vinnustofu/hæfingu annarsvegar og dósamóttöku hinsvegar. Starfssemi Öldunnar kemur til móts við þarfir fatlaðs fólks fyrir atvinnu og hæfingartengda þjónustu sem stuðlar að aukinni hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi til jafns við aðra.

Aldan starfar samkvæmt lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Aldan rekur dósamóttöku, verslun, saumastofu og kertagerð. Aldan tekur að sér pökkun, límmerkingar á alls kyns varningi fyrir stofnanir og fyrirtæki ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.

Leitað er að metnaðarfullum, hressum og jákvæðum starfsmanni með brennandi áhuga á málefnum fatlaðra.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Virkja til þátttöku á vinnustað
  • Aðstoða við daglegar athafnir
  • Leiðbeina varðandi vinnubrögð og öryggisatriði
  • Leiðbeina við móttöku og afgreiðslu
  • Þrif á vélum og húsnæði
  • Önnur tilfallandi störf

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af vinnu með fólki með fötlun æskileg
  • Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
  • Hæfileiki til að leiðbeina og setja mörk
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Samkvæmt jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetur sveitarfélagið karla jafnt sem konur til þess að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2020. Viðkomandi þarf að geta hafið störf síðasta lagi þann 1. maí 2020.

Nánari upplýsingar gefur Sjöfn Hilmarsdóttir forstöðumaður Öldunnar í síma 433-7440 eða á netfangið     sjofn.hilmarsdottir@borgarbyggd.is   Umsókn með helstu upplýsingum um umsækjanda, menntun og fyrri störf auk meðmælenda berist með tölvupósti til forstöðumanns.


Share: