Laust starf í frístund á Kleppjárnsreykjum

ágúst 26, 2020
Featured image for “Laust starf í frístund á Kleppjárnsreykjum”

Óskað er eftir frístundaleiðbeinanda í frístund á Kleppjárnsreykjum.  

Markhópur frístundar eru börn á aldrinum 6-9 ára.

Í boði er hlutastarf þar sem unnið er mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga frá kl. 14:10 – 16:15 og fimmtudaga frá kl. 15:00 – 16:15.

Unnið er samkvæmt gæðaviðmiðum í frístundastarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðbeina börnum í leik og starfi
  • Skipulagning á faglegu frístundarstarfi
  • Samvinna við börn og starfsfólk
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundar í Borgarbyggð

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Frumkvæði, gleði og sjálfstæði
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

 Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Davíð Guðmundsson, tómstundafulltrúi á netfanginu david@umsb.is

 


Share: