Laust starf hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar

mars 22, 2021
Featured image for “Laust starf hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar”

Félagsþjónusta Borgarbyggðar leitar að félagsráðgjafa eða verkefnastjóra með sértæka ábyrgð í velferðarmálum með háskólamenntun á sviði heilbrigðis-og/eða félagsvísinda.

Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði að framúrskarandi þjónustu og öflugu vinnuumhverfis.

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ

  • Annast meðferð mála einstaklinga og fjölskyldna innan félagsþjónustu, þ.m.t. félagslega ráðgjöf og fjárhagsaðstoð.
  • Annast greiningu og meðferð barnaverndarmála.
  • Þjónusta og ráðgjöf við fólk með fötlun og þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu s.s. með skólum, leikskólum og öðrum þjónustustofnunum vegna málefna einstaklinga eða fjölskyldna.

MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR

  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla á sviði barnaverndar og meðferð fjölskyldumála æskileg.
  • Þekking og reynsla af vinnu með fólki með skerðingar æskileg.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu.

FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ

Um er að ræða tímabundna ráðningu í  6 mánuði með möguleika á framlengingu.

Vinnutími: dagvinna

Starfshlutfall: 100%

Starfsvið: fjölskyldusvið

Umsóknarfrestur: 2. apríl 2021

Umsókn skal senda á netfangið: atvinna@borgarbyggd.is  Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.  Öllum umsóknum verður svarað.

Áhugasamir einstaklingar, án tillit til kyns eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga  við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar  um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsmálastjóri og Hlöðver Ingi Gunnarsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 433 7100.


Share: