Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskornum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Erum við að leita að þér?
Starf auglýst sbr. 8.gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Byggingareftirlit og umsjón með byggingarmálum sveitarfélagsins.
- Ráðgjöf er varðar byggingarmál ásamt móttöku og afgreiðslu á byggingarleyfisumsóknum.
- Framkvæmd úttekta og útgáfa leyfa ásamt yfirferð og staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga.
- Samskipti við hagsmunaaðila.
- Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af deildarstjóra skipulags- og byggingarmála.
Menntun og hæfniskröfur:
- Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr.160/2010.
- Æskilegt er að viðkomandi hafi góða þekkingu og reynslu á sviði byggingarmála.
- Góð almenn tölvukunnátta. Þekking á OneSystem er kostur.
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni ásamt frumkvæði og öguðum vinnubrögðum í starfi.
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
Frekari upplýsingar um störfin:
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um. Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.
Umsóknir skal senda á netfangið atvinna@borgarbyggd.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Vinnutími: Dagvinna
Starfshlutfall: 100%
Starfssvið: Stjórnsýslu-og þjónustusvið
Umsóknarfrestur er til og með: 25. apríl 2021
Nánari upplýsingar veitir Guðný Elíasdóttir deildarstjóri skipulags- og byggingarmála, netfang: gudny.eliasdottir@borgarbyggd.is – símanúmer: 433-7100