Grunnskólakennara vantar við Grunnskóla Borgarfjarðar. Æskilegar kennslugreinar eru stærðfræði á unglingastigi og umsjón. Um er að ræða 80% starf.
Einnig vantar ritara/starfsmann á bókasafn í 100 % starf við Kleppjárnsreykjadeild skólans. Um er að ræða afleysingu vegna fæðingarorlofs til eins árs.
Umsóknarfrestur er til 15.júní n.k.
Allar upplýsingar veitir Ingibjörg Adda Konráðsdóttir í síma 8401520 eða í netfangi ingibjorg.adda.konradsdottir@gbf.is