Laus störf hjá Klettaborg

júlí 12, 2007
Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi auglýsir eftir leikskólakennara og/eða þroskaþjálfa frá 13. ágúst.
Um er að ræða tvær stöður:
– 100% staða, vinnutími kl. 8.30-17.00 (30 mín. matarhlé) og

  • – 75% staða, vinnutími kl. 11-17.

 
Leikskólinn Klettaborg er 3ja deilda leikskóli sem leggur megináherslu á samskipti, skapandi starf og nám án aðgreiningar. Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, jákvæðni, sjálfstæði og skipulögðum vinnubrögðum. Nánari upplýsingar veita Steinunn Baldursdóttir, leikskólastjóri eða Guðbjörg Hjaltadóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 437-1425 eða á netfanginu klettaborg@borgarbyggd.is.
Til greina kemur að ráða starfsmenn með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.

Share: