Laus staða við Grunnskólann í Borgarnesi

ágúst 11, 2014
Mikil þróun á sér stað innan Grunnskólans í Borgarnesi og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starfsfólk skólans mynda.
Leitað er að umsjónarkennara á miðstig sem er tilbúinn að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi með nemendum, samstarfsfólki og foreldrum skólaárið 2014-2015.
 
Menntun, reynsla og hæfni:

  • Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla.
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar.

Umsóknarfrestur er til 16. ágúst
 
Umsóknir skal senda til Signýjar Óskarsdóttur skólastjóra, signy@grunnborg.is
Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá henni í síma 698-9772.
 
 

Share: