Laus kennarastaða

júní 7, 2019
Featured image for “Laus kennarastaða”

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir kennara á unglingastigi á Kleppjárnsreykjum

Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva grunnskóli í Borgarbyggð með um 180 nemendur. Starfsstöðvar hans eru á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og Hvanneyri. Einkunnarorð skólans eru gleði, heilbrigði og árangur og eru þau höfð að leiðarljósi í öllu starfi skólans.

Kennarar á unglingastigi vinna í teymi með 8.-10. bekk. Auglýst er eftir öflugum kennara til að vera fjórði kennari í teymi. Til greina kemur að hluti starfsins sé sérkennsla.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Áhugi og metnaður fyrir að starfa með börnum og ungmennum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Framtaksemi og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Metnaður í starfi

Mikilvægt að umsækjandi sé tilbúinn að vinna eftir stefnu og gildum skólans. Sjá heimasíðu http://www.gbf.is/

Í samræmi við jafnréttisstefnu Grunnskóla Borgarfjarðar og Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsóknir skal senda til Helgu Jensínu Svavarsdóttur skólastjóra með upplýsingum um menntun, réttindi og  starfsreynslu, ásamt ábendingu um meðmælendur á netfangið helga@gbf.is og einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá henni í síma 861-1661.

Umsóknarfrestur er til  17. júní nk.


Share: