Lausar stöður við leikskólann Klettaborg

maí 30, 2006
 
Leikskólakennara vantar til afleysinga í eitt ár við leikskólann Klettaborg í Borgarnesi.
 
Um er að ræða tvær og hálfa stöðu.
Daglegur vinnutími er:

  1. kl. 9-17
  2. kl. 8.15 – 16.45 (30 mín. matarhlé)
  3. kl. 12.45-17.15

 
Leikskólinn Klettaborg er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 2-6 ára, og er rekinn á tveimur stöðum í Borgarnesi.
 
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði í starfi, jákvæðni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
 
Fáist ekki leikskólakennarar kemur til greina að ráða starfsmenn með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.
 
Umsóknarfrestur er til 6. júní n.k.
 
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri í síma 437-1425. Netfang leikskólans er klettaborg@borgarbyggd.is
 
 

Share: