Lausar stöður við Grunnskólann í Borgarnesi 2015

mars 31, 2015

Grunnskólinn í Borgarnesi leitar að öflugu fólki í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2015.
Deildarstjóri unglingastigs

Menntun, reynsla og hæfni:

• Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla.
• Meistarapróf eða framhaldsmenntun sem nýtist í
starfi.
• Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkjarkur.
• Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar.
• Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af manna
forráðum og verkefnastjórnun.

Óskað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í virku og
skapandi skólastarfi og stýra faglegri þróun í sterku teymi kennara og stjórnenda

Tónmenntakennari

Menntun, reynsla og hæfni:

• Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla.
• Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkjarkur.
• Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar.
Óskað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í virku og
skapandi skólastarfi og hefur hugrekki til þess að feta nýjar leiðir.
 

Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður skóli með um 300 nemendur í 1.-10. bekk og tekur virkan þátt í skólasamfélagi Borgarbyggðar. Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starfsfólk skólans mynda.

Umsóknarfrestur er til 20. apríl.

Umsóknir skal senda til Signýjar Óskarsdóttur skólastjóra, signy@grunnborg.is Skólastjóri veitir einnig upplýsingar í síma 698-9772.

 

Share: