Borgarbyggð auglýsir lausar lóðir til úthlutunar í sveitarfélaginu.
Um er að ræða einbýlishúsalóðir við Mávaklett nr. 10, Stöðulsholt nr. 37 – 40 og Stekkjarholt nr. 1 og 4.
Lóðirnar eru staðsettar í Borgarnesi.
Lóðunum verður úthlutað á fundi byggðarráðs í byrjun maí. Berist fleiri en ein umsókn um hverja lóð verður dregið á milli umsækjenda
að viðstöddum fulltrúa sýslumanns.
Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda úthlutunarreglur Borgarbyggðar frá árinu 2019. Umsóknareyðublöð, lóðarblöð, gjaldskrár, skipulags- og byggingaskilmálar og aðrar upplýsingar er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, borgarbyggd.is.
Umsóknarfresturinn er til og með 5. maí 2021.
Einnig eru eftirfarandi lóðir lausar til umsóknar í sveitarfélaginu, sem áður hafa verið auglýstar:
Í Borgarnesi
- Einbýlishúsalóðir við Fjóluklett nr. 8, 10, og 15.
- Parhúsalóð við Fjóluklett nr. 9-11.
- Atvinnuhúsalóðir við Sólbakki nr. 24a, 24b, 26a og 26b.
- Atvinnuhúsalóðir við Vallarás nr. 1, 2, 4, 6, 8, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16 og 18.
- Hesthúsalóð við Selás nr. 11
Á Hvanneyri
- Einbýlishúsalóðir við Arnarflöt nr. 6 og Lóuflöt nr. 2 og 4.
- Parhúsalóðir við Rjúpuflöt nr. 1-3, 5-7, 6-8.
- Atvinnuhúsalóðir við Melabraut nr. 2A, 2B, 4A og 4B.
Í Bæjarsveit
- Einbýlishúsalóðir við Ásbrún nr. 1, 3 og 5.
Á Varmalandi
- Parhúsalóðir við Birkihlíð nr. 2-4