Lausar lóðir sýnilegar í kortasjá Borgarbyggðar

febrúar 25, 2025
Featured image for “Lausar lóðir sýnilegar í kortasjá Borgarbyggðar”

Sveitarfélagið hefur undanfarin misseri unnið að því að gera lausar lóðir aðgengilegar í kortasjá og er afraksturinn nú sýnilegur notendum.

Með þessari lausn geta áhugasamir litið yfir lausar lóðir í sveitarfélaginu og fengið allar helstu upplýsingar í gegnum vefinn.
Kortasjáin er uppfærð jafnóðum og breytingar verða á lóðaframboði, þannig að notendur hafa alltaf aðgang að nýjustu upplýsingum.

Ef notandi vill nýta sér þessa lausn og sjá lausar lóðir á kortasjánni þarf að haka við „Lausar lóðir“ á valmyndinni sem birtist hæra meginn á skjánum. Þegar smellt er á einstaka lóð opnast spjald með öllum upplýsingum um hana, svo sem tegund, stærð, leyfilegt byggingarmagn og gatnagerðargjöld. Einnig er þar hægt að hlaða niður lóðablaði og senda fyrirspurn.

Sömuleiðis er að finna hlekk á umsókn um lóðina beint í kortasjánni, en allar umsóknir þurfa að berast í gegnum Mínar síður.

Með þessari nýjung verður ferlið aðgengilegra og öflugra fyrir alla þá sem hyggjast sækja um lóðir. Hvetjum við áhugasama til að kynna sér kortasjána og nýta sér þær upplýsingar sem þar er að finna.

Kortasjá Borgarbyggðar má finna hér.


Share: