Lausaganga hunda í þéttbýli er bönnuð

júlí 20, 2009
Að undanförnu hefur talsvert verið kvartað yfir lausum hundum í þéttbýli Borgarbyggðar.
 
Af því tilefni er bent á að lausaganga hunda er bönnuð í þéttbýli í Borgarbyggð og skulu hundar vera í taumi þegar að eigendur þeirra eða forráðamenn eru með þá úti að ganga.
Einnig er það skylda forráðamanns hunds að hreinsa upp saur og annan óþrifnað eftir hundinn.
 

Share: