Laus störf í frístund í Borgarnesi

desember 13, 2019
Featured image for “Laus störf í frístund í Borgarnesi”

Óskað er eftir frístundaleiðbeinendum í frístund í Borgarnesi. Markhópur frístundar eru börn á aldrinum 6-9 ára.

Í boði er hlutastarf þar sem unnið er virka daga frá kl. 12:45-16:00, viðkomandi þarf að geta unnið tvo til fimm daga vikunnar. Unnið er samkvæmt gæðaviðmiðum í frístundarstarfi.

 Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Skipulagning á faglegu frístundarstarfi
  • Samvinna við börn og starfsfólk
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundar í Borgarnesi.

 Hæfniskröfur

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Frumkvæði, gleði og sjálfstæði.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 3.janúar.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigga Dóra, tómstundafulltrúi á netfanginu siggadora@umsb.is

 

 


Share: