
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem framundan er ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Erum við að leita að þér?
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hefur opinbert eftirlit og umsjón með skipulagsmálum, samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010 með síðari breytingum.
 - Framkvæmd skipulagsmála og leyfa.
 - Gerir auglýsingar og kynningar varðandi skipulagsmál, þar með talið í Stjórnartíðindum.
 - Lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
 - Aðstoðar við viðhald og varðveislu uppdrátta og skjala vegna skipulagsmála í samræmi við ákvæði laga og reglugerða þar um.
 - Aðstoðar við útreikninga og að reikningar séu gefnir út fyrir gjöldum er varðar skipulagsmál samkvæmt gjaldskrá Borgarbyggðar.
 - Veitir upplýsingagjöf og ráðgjöf um skipulags- og byggingarmál í Borgarbyggð.
 - Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af deildarstjóra skipulags- og byggingarmála.
 
Menntun og hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem í umhverfisskipulagi, skipulags- eða byggingarfræði.
 
- Góð almenn tölvukunnátta, þekking á OneSystem er kostur.
 - Þekking og reynsla sem nýtist í starfi.
 - Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
 - Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
 - Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð.
 
Frekari upplýsingar um störfin:
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um. Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.
Umsóknir skal senda á netfangið atvinna@borgarbyggd.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Vinnutími: Dagvinna
Starfshlutfall: 100%
Starfssvið: Stjórnsýslu-og þjónustusvið
Umsóknarfrestur er til og með: 20. maí 2021
Nánari upplýsingar veitir Guðný Elíasdóttir deildarstjóri skipulags-og byggingarmála, gudny.eliasdottir@borgarbyggd.is – símanúmer: 433-7100