Sálfræðingur óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar í 60- 100% starf.
Störf sálfræðings eru á sviði barnaverndarnefndar og velferðarnefndar. Borgarbyggð þjónustar einnig Dalabyggð og Skorradal um barnavernd, félagsþjónustu og í málefnum fólks með fötlun.
Starfssvið
- Greining og meðferð barnaverndarmála
- Einstaklings- og fjölskyldumál fyrir félagsþjónustu, þ.m.t. þjónusta við fatlaða
- Þverfagleg teymisvinna með stofnunum, s.s. skólum, leikskólum og öðrum þjónustustofnunum vegna málefna einstaklinga og fjölskyldna
- Annast fræðslu fyrir stofnanir sveitarfélagsins s.s. skóla, leikskóla og aðrar þjónustustofnanir, um barnavernd og aðra faglega þætti er lúta að sviði sálfræðings
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi sem sálfræðingur
- Þekking og reynsla á sviði barnaverndar, félagsþjónustu og af vinnu með fólki með fötlun
- Reynsla af meðferð fjölskyldumála
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
- Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni í þverfaglegu samstarfi
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsmálastjóri í síma 433-7100, vildis@borgarbyggd.is.
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
Launa- og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við Samband íslenskra sveitarfélaga. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um óháð kyni og uppruna.