Okkur vantar leikskólakennara sem vill vinna í góðum og traustum leikskóla. Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullu og faglegu starfi þar sem þroski og velferð barna er í fyrirrúmi.
Áhersluatriðin í leikskólastarfinu eru: Einstaklingsmiðað nám, leiðtogahæfni, leikskólalæsi og heilsuefling.
Komdu í lið með okkur!
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
Leikskólakennari vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra. Hann fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans.
MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR
- Leikskólakennararéttindi
- Jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilji
- Færni í mannlegum samskiptum
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla af uppeldi og menntun leikskólabarna
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Vinnutími: dagvinna
Starfshlutfall: 100%
Starfsvið: fjölskyldusvið
Umsóknarfrestur: 30. apríl. 2021
Miðað er við að starfsmaður geti hafið störf: 1. júní 2021 eða eftir nánara samkomulagi
Umsókn skal senda á netfangið: atvinna@borgarbyggd.is Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetjum við áhugasama um að sækja um óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri í síma 433-7160.