Lan-tölvuleikjamót í Mími ungmennahúsi.

desember 30, 2003
 
Svokallað Lan-tölvuleikjamót með samtengdum tölvum fór fram helgina fyrir jól í Mími ungmennahúsi. Keppt var í herkænskuleikjum og var Geir Konráð Theodórsson meistari Mímis árið 2003. Guðni Albert var í öðru sæti og Jakob Orri í því þriðja.
Alls komu 14 manns og spiluðu og var mikið fjör í Mími.
Opið hús var svo á þorláksmessu. Starfið hefst af krafti aftur á nýju ári.
ij

Share: