Landsleikur á Skallagrímsvelli

ágúst 3, 2005
NM U17 karla
Næstkomandi föstudag 5. ágúst kl. 14.3o fer fram leikur í B riðli U-17 Norðurlandamóts landsliða á Skallagrímsvelli en mótið sem nú fer fram á nokkrum stöðum á landinu.
Eru það Finnland og Færeyjar sem kjósa að koma í Borgarnes til að leika sinn leik og tökum við þeim fagnandi, því víst er að þarna verður um skemmtilega viðureign að ræða og góður bolti leikinn.
Þrátt fyrir erfiðann leiktíma hvetjum við alla sem geta til að fara á völlinn og hvetjum strákana til dáða.
Nánari upplýsingar um mótið á www.ksi.is
ij
 

Share: