Landnámssetur tilnefnt til Eyrarrósarinnar

febrúar 5, 2009
Landnámssetur Íslands í Borgarnesi er eitt þriggja verkefna sem valin hafa verið í tilnefningu til Eyrarrósarinnar 2009. Tilkynnt verður um úrslitin á Bessastöðum þann 10. febrúar næstkomandi. Eyrarrósin er veitt árlega fyrir eitt afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Þrjú verkefni eru valin úr hópi umsækjenda og þau kynnt sérstaklega. Eyrarrósin er hluti samkomulags sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands hafa gert með sér um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni. Meðal markmiða er að auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta, gefa íbúum landsins kost á afburða alþjóðlegum listviðburðum og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.
Fyrstu Eyrarrósina, sem afhent var árið 2005, hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði; 2006 féll hún í skaut LungA, Listahátíðar ungs fólks á Austurlandi. Eyrarrósina 2007 hlaut Strandagaldur á Hólmavík og í janúar 2008 kom hún í hlut hinnar ísfirsku Rokkhátíðar alþýðunnar; Aldrei fór ég suður.
Verðlaunin eru gripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur og hálf önnur milljón króna í peningum.
 
Ljósmynd með frétt: Guðrún Jónsdóttir
 

Share: